Bless bless - ný síða komin: nurseimba.com
Farið á nýju síðuna mín!
Go to my new site, you will find me and my book there! Go to:
"Ástarsamband við Guð " Inngangur
Inngangur
Ég er 29 ára hjúkrunarfræðingur sem er alls ekkert merkileg og þó stórmerkileg í augum sumra eins og og þú munt komast að.
Ég hef verið beðin um að skrásetja sögu mína í stuttu máli, helst síðastliðin 5 ár. Þig undrar kannski hvers vegna og af hverjum, en ég mun koma að því.
Þessi bók verður ólík öllum bókum sem þú hefur lesið jafnvel þó þú hafir eflaust lesið merkilegri æviágrip en þetta. Þetta mun þó vera hreinskilnasta og persónulegasta sjálfsævisaga sem þú hefur rekist á, það er ég viss um.
Þú munt lesa um kraftaverk, opinberanir, tilfinningaþrungnar upplifanir og ferð til Himnaríkis meðal annars.
Þú munt hugsanlega ekki trúa orði sem ég segi en mögulega trúir þú því öllu og það mun breyta lífi þínu. Ég lofa einu og það er þetta - ég lýg ekki í þessari bók.
Ef þessi bók fær þig til að hugsa hlutina upp á nýtt og hugleiða dýpstu spurningar hjarta þíns, þá er tilgangnum náð.
Hér hefst ganga okkar saman, okkar þriggja.